15.7.2009 | 23:17
Dalai Lama & Howard C. Cutler....
.... saman í magnaðri bók sem heitir " Leiðin til lífshamingju "
Einn allra merkasti hugsuður og hugsjónamaður samtímans....
Hann talar um aðferð sem honum sjálfum finnst koma að gagni til þess að kveða niður áhyggjur, með því að hugsa alltaf á þessa leið:
Ef ástandið eða vandamálið er ekki verra en svo að hægt sé að spyrna við fæti, er ástæðulaust að hafa áhyggjur.
Ef engin leið er hins vegar út úr vandanum, öll sund lokuð, þjónar það engum tilgangi að hafa áhyggjur. Við fáum hvort eð er engu breytt!
- Léttir fyrir okkur mannkynið ef allir myndu temja sér þennan hugsanahátt, hehe...
Fór á fund þar sem ég fékk að heyra allt sem ég þurfti að heyra, eins og svo oft áður...
Lenti í fyndnu atviki í fyrradag...
Ég var að keyra með afa Gunna og Lindu Rós....
Ég segi við afa: Heyrðu afi, ég er að fara að hitta sponsorinn minn í hádeginu á morgun.
Hann horfir á mig og segir: Já okei, og djókar í mér og hristir hausinn eins og hann skilji ekki neitt í neinu.
Ég segi: Já afi minn, ég þarf að halda við andlega heilbrigðinu.
Afi segir: Karen, hefur þú einhverntíman verið eitthvað annað en andlega heilbrigð?
.... Og síðan sprungum við öll úr hlátri.
Ég er farin að horfa á TV með uppáhalds fólkinu mínu :)
Vinna í fyrramálið....
Það verður gott að mæta aftur eftir besta júní- byrjun júlí mánuð lífs míns! =D
Hafiði það gott, þangað til næst:*
Athugasemdir
Neii Karen þú hefur alltaf verið andlega heilbrigð!
Linda Rós Eðvarðsdóttir, 15.7.2009 kl. 23:43
I know ;) Þetta var einum of gott moment.
Afi er svo mikill snillingur :)
Karen Bergljót (IP-tala skráð) 15.7.2009 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.